Andarterrin að hætti veisluþjónustunnar Veislunnar
375 g andakjöt (til dæmis læri)
75 g beikon (í bitum)
250 g grísahnakki
125 g kjúklingalifur
125 g hráskinka
1/2 dl armaniak
1/2 dl andasoð
1 hvítlauksgeiri
15 g salt
5 g pipar
75 g pistasíuhnetur
Allt grófhakkað, salt og pipar blandað saman við, síðan kryddi og vökva. Bakað í
formi við 140 gráður í ca 1 og 1/2 tíma, best að láta standa í kæli í 1-2 daga
áður en það er skorið.