Ananassalsa

Salsasósa er góð með grillmat. Hér kemur uppskrift að salsasósu sem passar vel með nachos eða sterkkrydduðum
eða grilluðum mat. 1 dós ananas í bitum
1 epli
2 vorlaukar
1 rauður chili-pipar
safi úr hálfri sítrónu
2 msk. olía
¼ tsk. pipar
½ tsk. salt
Skerið eplið í bita, laukurinn er saxaður smátt og síðan er öllu blandað vel saman. Látið brjóta sig
í ísskáp í að minnsta kosti klukkustund áður en lagt er á borð.