Sveppir í smjördeigshúsi með hvítlauk
Smjördeig
6 dl rjómi
600 gr sveppir
salt og pipar
eitt egg
hvítlaukssmurostur
3-4 hvítlauksrif
3 msk sherry
3 msk söxuð steinselja
smjör til steikingar
Smjördeigið skorið í ferninga 7x7 cm. Sett á bökunarplötu og penslað með eggi, bakað við 180°C. sveppirnir hreinsaðir og skornir í fjóra helminga. Brúnið sveppina í smjörinu og bætið fínt söxuðum hvítlauk út í ásamt sherryinu og sjóðið niður. Bætið rjómanum ásamt rjómaosti saman við og sjóðið þar til hæfileg þykkt er komin, kryddið með salti og pipar ásamt saxaðri steinselju og fyllið smjördeigsferningana. Berið strax fram.