Súkkulaðikrem
4 msk
rjómi
4 msk sykur
4 msk nýmjólkurduft
75 g smjör
100 g gott, dökkt súkkulaði
Rjómi,
sykur, mjólkurduft og smjör sett í pott, hitað rólega og hrært
stöðugt þar til allt er bráðið og samlagað. Súkkulaðið brotið eða saxað í
litla bita, sett út í og hrært við mjög vægan hita þar til það er bráðið.
Látið kólna þar til kremið fer að þykkna og þá er því hellt eða smurt yfir
tertuna. Kælt þar til kremið er stíft.