Steiktur Provoloneostur með fíkju- og mangósalati
fyrir 4

200 g provoloneostur,
skorinn í eins cm þykkar sneiðar.
1 mangóávöxtur, vel þroskaður.
2 ferskar fíkjur.
1 knippi fersk minta, fínt söxuð.
4 msk. jómfrúarolía.
1 msk. balsamedik.
sólblómaolía til steikingar.

Afhýðið mangó og fjarlægið kjarna. Skerið svo ávöxtinn í litla tenginga og setjið í skál. Skolið fíkjur og skerið í teninga og blandið við mangó. Bætið við ólívuolíu, balsamediki og mintu og blandið vel
saman. Látið standa við stofuhita. Hitið teflonhúðaða pönnu með sólblómaolíu og steikið ost í um það bil eina mínútu á hvorri hlið þar til hann er orðinn gullinbrúnn og mjúkur í miðjunni. Ostsneiðarnar eru svo
settar beint á diska og salati í skál skipt jafnt á diskana og rétturinn því næst borinn fram.