Steiktir mjölbananar
2
mjölbananar (platains), gulir og þroskaðir
3 skalottlaukar
2 tómatar, þroskaðir
2 hvítlauksgeirar
1 þurrkað chilialdin
2 msk vatn
3 msk olía
2 egg
nýmalaður pipar
salt
Bananarnir klofnir eftir endilöngu, settir í pott með sjóðandi vatni og
soðnir í um 10 mínútur, eða þar til þeir eru meyrir en ekki farnir að fara í
mauk. Teknir upp úr og settir á bretti. Látnir kólna ögn og síðan afhýddir
og skornir í teninga, 1/2-1 cm á kant. Skalottlaukurinn, hvítlaukurinn og
tómatarnir saxaðir, settir í matvinnsluvél eða blandara ásamt chilialdini og
vatni, og maukaðir. 2 msk af olíu hitaðar í potti og síðan er maukið sett út
í og steikt í 4-5 mínútur við meðalhita; hrært mjög oft á meðan. Bananarnir
settir út í og steiktir í 2-3 mínútur í viðbót. Teknir af hitanum. Eggin
léttþeytt með pipar, salti og svolitlu vatni. Afgangurinn af olíunni hitaður
á lítilli pönnu, eggjahrærunni hellt á hana og eggjakaka steikt á venjulegan
hátt. Þegar hún hefur stífnað er henni hvolft á bretti og hún skorin í
fremur mjóar ræmur. Bananarnir settir í hrúgu á disk og eggjaræmum raðað eða
stráð ofan á.