Steiktar möndlur

200 g heilar möndlur, afhýddar
3 msk jómfrúarolía
gróft sjávarsalt (helst Maldonsalt)

Möndlur og olía sett á kalda pönnu og stillt á meðalhita. Möndlurnar
steiktar uns þær eru gullinbrúnar og hrært oft á meðan. Teknar upp með
gataspaða og látið renna af þeim á eldhúspappír en síðan eru þær settar á
hitaðan disk eða í skál og salti stráð yfir. Bornar fram volgar.