Spínat og gráðosta-risotto

500 g spínat, gróft niðurskorið
ólífuolía
smjör
1 fínsaxaður laukur
2 hvítlauksrif, fínt söxuð
400 g risottó-hrísgrjón
150 ml hvítvín
600 ml kjúklingasoð, lagað með vatni og kjúklingakrafti
steinseljubúnt
150 g gráðostur, mulinn niður
25 g ristaðar furuhnetur

Aðferð: Snöggsjóðið spínatið með smásalti. Steikið saman laukinn og hvítlaukinn í olíunni og smásmjöri á vægum hita þar til hann er orðinn mjúkur. Setjið síðan grjónin saman við í um fimm mínútur áður en víninu er hellt saman og suðan látin koma upp. Látið sjóða í stutta stund og hrærið vandlega í á meðan. Lækkið síðan hitann og bætið soðinu við smám saman. Kryddið eftir smekk með pipar, salti, múskati og öðru kryddi að eigin smekk. Látið grjónin drekka soðið vel í sig áður en bætt er við meiru og hrærið reglulega. Tímasetjið þetta samkvæmt upplýsingum um suðutíma á hrísgrjónapakkanum. Þegar hrísgrjónin eru orðin hæfilega soðin skal taka risottóið af hellunni og blanda saman við steinseljunni, ostinum og furuhnetunum.