Sópransulta sælkerans

Chili-aldin – magn, litur og stærð eftir smekk
1 stór paprika í sama lit og chili-aldinið
150 ml eplaedik (cider-vinegar)
300 g strásykur (má einnig nota gervisykur en þá þarf að minnka magnið
samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum eða eftir smekk)
2 msk. melatin-sultuhleypir í gulu bréfi

Aðferð:
Chili-aldinin eru fræhreinsuð og maukuð með sykri og ediki í matvinnsluvél. Ég miða við að 2 til 3 lítil chili gefi milda sultu en 3-4 stór gefi sterka sultu. Blandan er hituð að suðu og látin malla í 2 til 3 mínútur. Þá er potturinn tekinn af hellunni, sultuhleypi bætt saman við blönduna og hrært vel þannig að ekki myndist kekkir. Þá er aftur hleypt á suðu og látið sjóða í 2 mínútur meðan hrært er stöðugt í. Þá er sultan látin standa í nokkrar mínútur og froðan veidd ofan af. Að lokum er hún sett á hreinar krukkur og látin kólna og stífna áður en lokið er sett á. Sultan er einstaklega góð með ostum, kjúklingi og ýmsum köldum réttum, en einnig er gott að nota hana sem gljáa á svína- og fuglakjöt