Sól- og rifsberjasulta
Kíló af berjum á móti 500 - 1000 gr af sykri og 2 - 3 matskeiðar vatn. Hafið með stilka og óþroskuð ber eða hleypi. Látið malla í þrjár til fimm mínútur og kremjið berin vel. Sigtið safann og hellið á krukkur. Hratið má blanda við vatn og pressa í sósur, bakstur eða út á AB-mjólk. Einnig er hægt að bæta við krækiberjasafa út í hlaupið til að brydda upp á nýjungum.