Snöggsteikt lifur

með sveppum og rifsberjasósu
800 g lambalifur
500 g sveppir
50 g smjör
2-3 skalottlaukar, saxaðir (eða ¼
venjulegur laukur)
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
nokkrar timjangreinar eða ½ tsk
þurrkað timjan
pipar og salt
1 msk olía
3 msk hveiti
1 tsk paprikuduft
chili-pipar á hnífsoddi (má sleppa)

Skerðu lifrina á ská í 1 cm þunnar sneiðar og hreinsaðu burt æðar. Skerðu sveppina í tvennt eða fernt. Bræddu smjörið á stórri, þykkbotna pönnu, settu sveppi, lauk, hvítlauk
og timjan á pönnuna og steiktu sveppina við góðan hita í nokkrar mínútur, þar til þeir hafa tekið góðan lit. Hrærðu oft í þeim á meðan og kryddaðu með pipar og salti. Taktu sveppi og lauk af pönnunni og bættu olíunni á hana. Blandaðu saman hveiti, paprikudufti, chili-pipar, pipar og salti á diski, veltu lifrarsneiðunum upp úr blöndunni og steiktu þær við háan hita í um 1 mínútu á hvorri hlið. Settu lifrina á hitað fat ásamt sveppunum og berðu fram með rifsberjasósu, kartöflum og grænu salati.