Síldarsalat, Ís, Rauðrófur og hverabrauð
SÍLDARSALAT
1 krukka, veljið ykkar uppáhalds lauksíld
1 stk. grænt epli skorið í teninga
2 meðalstórar kartöflur skrældar, skornar í jafna teninga og soðnar
3 greinar dill, saxað
½ saxaður shallotlaukur
Sinneps- og rjómaostasósa
Hverabakað rúgbrauð í sneiðum
Íslenskt smjör. þetta eina sem not eru af með síldinni.
Skerið síldina í litla bita og blandið öllu varlega saman með skeið ásamt
hæfilegu magni af sinnepssósunni. Munið svo að smakka salatið til áður en það er
borið fram, til dæmis með sítrónusafa, salti og pipar. Smyrjið rúgbrauðið með
lystduglegu magni af smjöri og skerið út kökur með útstungunarformi. Setjið svo
salatið ofan í formið og þrýstið léttilega ofan á. Þetta er hægt að undirbúa
áður en gestir koma og ýta svo öllu saman bara úr formunum þegar bera á réttinn
fram.
SINNEPS- OG RJÓMAOSTASÓSA
100 g rjómaostur
50 g sýrður rjómi
2 msk. gott sterkt
sinnep, til dæmis
Kofoed’s sinnep
1 tsk. fljótandi hunang
Salt og sítróna
Setjið allt í hrærivélaskál og þeytið þar til sósan er silkimjúk. Smakkið til
með salti og sítrónu. Sósuna er svo hægt að geyma í kæli og nota aftur daginn
eftir.
SÍLDARÍS
200 ml rjómi
1 stk. eggjahvíta
50 g sykur
110 g lauksíld með
leginum, lauknum,
kryddinu og öllu
1 matarlímsblað
Matarlím er sett í kalt vatn til að mýkja það upp. Egg og sykur er hitað saman í
potti að 55°C og matarlími brætt út í. Því næst er það þeytt í hrærivél uns það
er orðið kalt aftur. Lauksíldin er sett í matvinnsluvél með safanum, lauknum,
kryddinu og öllu gúmmelaðinu og unnið þar til það er eins og þunnt mauk, þá er
það sigtað í gegnum fínt sigti. Rjóminn er léttþeyttur og hafður í skál yfir
ísbaði til að halda honum köldum. Þá er síldinni og eggjablöndunni velt saman
með sleikju. Þá er léttþeytta rjómanum blandað varlega saman við með sleikjunni
og ísblandan er klár. Svo er hægt að frysta ísinn í stóru formi og skera hann
niður eða frysta í litlum formum.
Rauðrófuteningar, mauk og gljái
2 stk. stórar rauðrófur
2 dl eplaedik frá Claus Meyer eða annað gott
edik
2 dl rauðrófusafi ferskur
eða úr flösku (fæst í
Heilsuhúsinu)
1 dl sykur
1 rósmaríngrein
1 lárviðarlauf
1 msk. Bornholmrapsolía
Skrælið rófurnar og skerið úr annarri þeirra jafna og fallega kubba og setjið
til hliðar. Notið endana og afskurðinn af þeirri rófu og skerið hina rófuna
niður í bita og setjið í pott ásamt edikinu, safanum, sykrinum og lárviðarlaufi.
Sjóðið þar til það er meyrt og fullsoðið. Sigtið þá rauðrófusafann frá í annan
pott. Maukið soðnu rófurnar í matvinnsluvél, vinnið þar til þær eru orðnar að
fínu mauki og smakkið til með smá salti og örlítilli kornolíu. Kælið. Sjóðið
fallegu teningana í sama safanum en passið að mauksjóða þá ekki. Sigtið þá frá
og kælið.
Sjóðið nú safann þar til hann er orðinn að hæfilega þykkum gljáa til að geta
hjúpað teningana, setjið rósmaríngreinina út í gljáann og látið pottinn standa
með loki í 10 mínútur, veiðið þá greinina og lárviðarlaufið upp úr. Athugið
þykktina með því að setja smá dropa á kaldan disk því gljáinn er þykkari þegar
hann er kaldur. Svo er gott að skreyta réttinn með nokkrum sólseljutoppum
(dill). Ekki skemmir að gæða sér á svo sem einu litlu staupi af frosnu
brennivíni með, sem er jafnvel hægt að krydda með nokkrum hráum rauðrófubitum og
dillgreinum kannski nokkrum dögum áður en það er drukkið. Það er gert með því að
troða því ofan í flöskuna.
