Seljurótarmauk (Guðrún)
1 seljurót
4-5 kartöflur
3 dl rjómi
1 tsk kraftur
salt og pipar
Aðferð:
Seljurót og kartöflur (með hýðinu)
smátt skorið. Soðið með rjómanum þar til þetta verður vel meyrt. Síðan kryddað
(gæti þurft meira en 1 tsk af krafti). Sett í matvinnsluvél og maukað. ATH
sjóðið með engu loki og hrært vel í á meðan soðið er.