Sætkartöflu púrre
Fyrir tvo
1-2 stk. sætar kartöflur (eftir stærð)
0,5 l rjómi
1 msk. smjör
Salt
Sætu kartöflurnar eru skrældar og því næst skornar í bita og settar í pott.
Rjóma bætt útí þar til hann flýtur yfir og látið yfir til suðu. Þegar
kartöflurnar eru soðnar eru þær sigtaðar og settar í matvinnsluvél ásamt
smjörinu og maukað. Smakkað til með salti.