Sætar kartöflur og epli
fyrir fjóra
2 stórar sætar kartöflur.
1 grænt epli.
115 grömm af smjöri
kanilsykur eftir smekk.
Aðferð:
Afhýðið eplið og kartöflurnar, skerið í þunna báta og blandið í stóra skál.
Stráið kanilsykri yfir og látið standa á meðan grillið er hitað.
Skiptið eplunum og kartöflunum síðan í fjóra jafnstóra skammta og setjið á
álpappír. Bætið síðan smjöri ofan á hvern skammt fyrir
sig. Smjörið má minnka eða auka eftir smekk hvers og eins. Vefjið síðan
álpappírnum vel utan yfir hvern skammt fyrir sig og grillið í
um hálftíma. Snúið á um það bil fimm mínútna fresti. Kartöflurnar og eplin eiga
að vera mjúk og sæt og bragðast best á meðan þau eru
ennþá heit. Eins og fyrr segir bragðast þessi réttur vel einn og sér en hann er
einnig góður sem hluti af eftirrétti með vanilluís