Sætar kartöflur með sykurpúðum
fyrir 6 (tekur um það bil 40 mínútur að matreiða)

1 kg sætar kartöflur
150 g smjör
100 g púðursykur
100 g sykurpúðar (má bæta ofan á eldfastamótið eftir smekk)
kanill og múskat eftir smekk

Hitið ofninn í 200 g og smyrjið eldfast mót. Sjóðið kartöflurnar í um fimmtán mínútur og flysjið. Hitið smjör, púðursykur og  tvo bolla af sykurpúðum ásamt kanil og múskati á meðalhita í potti þar til sykurpúðarnir hafa bráðnað. Skerið kartöflurnar aðeins niður, bætið þeim út í sykurbráðina og merjið þær saman við (það er allt í lagi að skilja eftir einhverja stærri bita). Hellið síðan kartöflunum í eldfasta mótið og bakið í tíu mínútur, takið mótið þá út, raðið afganginum af sykurpúðunum yfir og bakið aftur þar til sykurpúðarnir eru farnir að gyllast.