Sætar kartöflur með pekanhnetum

3-4 sætar kartöflur,
ca 1 kg
70 g smjör, brætt
1 msk. púðursykur
1 tsk. kanill
handfylli pekanhnetur, saxaðar

Skrælið sætu kartöflurnar, skerið í bita og sjóðið í léttsöltu vatni í 10-15 mínútur. Blandið saman bræddu smjöri, púðursykri og kanil. Hellið vatninu af kartöflunum og stappið þær gróflega saman. Hrærið smjörblöndunni saman við. Setjið í eldfast mót og stráið pekanhnetunum yfir. Bakið í 10-15 mínútur við 200 gráður. Einnig er hægt að bera stöppuna fram beint, þ.e. án þess að baka hana í ofninum, en við baksturinn verður yfirborðið stökkara en ella.