Sætar kartöflur bakaðar með engifer og vorlauk í rjóma (Inda)

Flysjið 3-5 sætar kartöflur og skerið í sneiðar
Hreinsið 4 vorlauka og skerið í smeiðar
Saxið eina teskeið af engiferi

Bakið kartöflurnar í viðloðunarfrírri pönnu upp úr smjöri eða olíu.
Saltið og piprið. Látið í stórt eldfast fat og stráið vorlauknum og engiferinu á milli sneiða.
Hellið rjómanum yfir þetta, en látið hann þó ekki fljóta yfir. Bakið í ofni við 175°í 25-30 mínútur.