Sæt kartöflumús með engifer, coriander og mango (Guðrún)
600 gr sætar kartöflur
1 msk engifer, smátt saxað
1 tsk kóríanderfræ
½ mango
1 tsk hunang
½ tsk sykur
appelsínusafi – blandað með vatni eftir smekk
Aðferð:
Skrælið kartöflur og skerið í teninga. Afhýða mango og skerið það í litla
teninga. Setjið kartöflur, engifer, kóríanderfræ, hunang, sykur og pipar í pot
tog bætið appelsínusafa og vatni þannig að það fljóti yfir. Hleypið suðunni upp
og látið malla í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru mauksoðnar.
Sigtið þá appelsínusafann frá og grófstappið kartöflurnar. Blandið í lokin
mangóbitum saman við. Músin geymist í kæli í allt að 5 daga.