Rjómasoðnir sveppir á ristuðu brauði
350 gr sveppir
1 hvítlaukur
50 gr sjör
nýmalaður pipar
200 ml rjómi
2 tsk sojasósa
1/2 tsk paprikuduft
sneiðar af góðu brauði
gott borðsalt
steinselja
Sveppirnir skornir í sneiðar og hvítlaukurinn saxaður smátt. Hvorutveggja smjörsteikt á pönnu og kryddað með pipar. Látið krauma í 4-5 mínútur. Síðan er rjómanum hellt yfir, sojasósu og paprikudufti hrært saman við og látið sjóða við vægan hita í 5 mínútur. Bragðbætið með pipar og salti eftir þörfum. Salatblöð sett á diska og ristaðar brauðsneiðar ofan á, síðan er sveppunum ausið yfir og skreytt með steinselju.