Ristaðar paprikur

Ristaðar paprikur eru veisla fyrir marga bragðlauka. Þær má nota í forrétti, mauka í sósu eða nota í stað ferskrar papriku til að gefa gömlum uppskriftum nýjan og skemmtilegan blæ. Það er allsendis ekki ógerlegt að rista þær heima við. Olíuberið paprikurnar sem á að rista, helst með pensli, með um 2 teskeiðum af grænmetisolíu á hverja papriku. Hitið grillið í ofninum. Raðið paprikunum á ofnplötu og
komið henni fyrir efst í ofninum. Fylgist vel með því að paprikurnar brenni ekki um of. Takið plötuna úr ofninum og snúið hverri papriku varlega með töngum þegar dökkar skellur fara að sjást á þeim. Setjið aftur í ofninn. Þegar þær fara aftur að dekkjast eru paprikurnar teknar út og settar í skál. Hyljið skálina með plastfilmu og gætið þess að hún sé loftþétt. Þannig losar gufan frá paprikunum um hýði þeirra. Eftir um 15-20 mínútur, þegar paprikurnar hafa kólnað nægilega, er stilkurinn dreginn úr. Afhýðið paprikuna því næst varlega. Haldið paprikunni með annarri hendi, notið hina til að kreista niður með paprikunni. Þá ætti stærsti hluti fræjanna og kjötsins að detta út um endann. Skerið hverja papriku á lengdina og opnið þær á borði. Skrapið það sem eftir varð í paprikunni úr, svo einungis kjötið sé eftir.

Paprika