Ris a la mande - möndlugrauturinn góði

Hráefni
700g mjólk
10g kalt smjör
1stk vanillustöng
50g hvítt súkkulaði
250g rjómi
50-100g flórsykur
eftir smekk ristaðar möndlur
til skrauts hvítt súkkulaði
eftir smekk fersk kirsuber

Aðferð
Penslið pottinn með smjöri svo mjólkin brenni ekki við, leyfið suðunni að koma upp á mjólkinni og bætið í hrísgrjónum.
Hrísgrjónin eru soðin með vanillustöng í 30-40mín eða þar til þau eru mjúk undir tönn, hrærið hvítu súkkulaði samanvið og kælið.

Rétt fyrir framreiðslu er þeyttum rjóma og ristuðum möndlum bætt í ásamt kirsuberja sultu og ferskum kirsuberjum