Pönnukökur með karrífyllingu
af ms vefnum
110 g hveiti
1 tsk matarsódi
0,5 tsk salt
15 g sykur
2 dl mjólk
2 egg
1 dós sýrður rjómi (10%)
50 g smjör
Blandið þurrefnunum saman í skál. Bætið mjólk, sýrðum rjóma og eggjum út í.
Bræðið smjörið og hrærið það vel saman við. Bakið 10-12 frekar þykkar pönnukökur
og breiðið úr þeim á bökunarpappír á meðan þær kólna.
Fylling:
0,5 bolli hrísgrjón
1 laukur (stór)
25 g smjör
1 tsk karrí
1 tsk season all
1 tsk grænmetiskraftur
2,5 dl kaffirjómi
1 dl vatn
1,5 banani
