Pestó, grænt eða rautt

150 g cashew-hnetur, ristaðar í ofni
1 stk. sítróna, notið safann.
1-2 hvítlauksgeirar
um það bil 200 ml ólívuolía
1-2 tsk. salt
1-2 búnt basil, ef búa á til grænt pestó
eða 1 krukka sólþurrkaðir tómatar, ef búa á til rautt pestó. Athugið að þá er gott að nota hálf sólþurrkaða tómata.

Setjið allt í matvinnsluvél. Smakkið til með salti og sítrónu.