Peru- og apríkósumauk (chutney)
Sæt ávaxtamauk eða chutney passa með ýmiss konar mat. Í uppskriftina þarf
425 g af þroskuðum tómötum, afhýddum, án kjöts og niðurskornum
425 g af sykri
140 g af eplum niðursneiddum og afhýddum
140 g af fínsöxuðum lauk
140 g af niðurskornum, þurrkuðum apríkósum
3 matskeiðar af ferskri engiferrót
2 matskeiðar af salti
450 ml af hvítvínsediki
1¼ kg af perum skornum í munnbita.
Aðferð
Setjið allt hráefnið nema perurnar í djúpan pott og látið suðuna koma upp. Látið
malla á lágum hita og hrærið öðru hverju í um klukkutíma. Bætið perunum saman
við og látið malla rólega í hálftíma í viðbót. Látið maukið
kólna alveg áður en það er sett í krukkur.