Ofnbakaðar sætar kartöflur með appelsínubátum og engifer
3-4 sætar kartöflur, afhýddar og skornar í bita
safi úr 1/2 appelsínu
engiferrót, 1 sm á lengd, skorin í bita
4-5 appelsínubátar
4-5 greinar ferskt timjan
olía
salt
pipar
Hitið ofninn í 180°C. Sjóðið kartöflubitana í u.þ.b. 5 mínútur. Hellið
vatninu frá og setjið bitana í smurt eldfast mót ásamt appelsínubátum, engifer
og timjani. Dreypið appelsínusafa og olíu yfir og kryddið með salt og pipar.
Bakið í u.þ.b. 15-20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar meyrar.