Möndlu konfekt

100 g Hagvers heilar
möndlur með hýði
150 g Odense núggat
Hunang
Green&Black´s 70 prósent súkkulaði.

Smyrjið möndlurnar með hunangi, helst með fingrunum svo að hunangið fari vel á möndlurnar. Setjið þær á bökunarpappír inn í ofn á plötu og ristið við 180°C í 7 til 10 mínútur. Takið möndlurnar út og látið kólna. Myljið ristuðu möndlurnar með kökukefli og blandið sallanum við núggatið. Kælið blönduna. Bræðið því næst súkkulaðið, búið til kúlur úr núggat-möndlublöndunni og dýfið kúlunum í brætt súkkulaðið. Skreytið að vild.