Makkarónugratin
300 gr
makkarónupasta
300 gr tómatar
1 stk laukur saxaður
1-2 stk hvítlauksgeirar
200 gr skinka skorin í teninga
2 msk smjör
½ búnt steinselja söxuð
salt og pipar
3 stk egg
2 ½ dl mjólk
2 msk brauðrasp
100 gr rifinn ostur
Sjóðið makkarónurnar í léttsöltu vatni í 10-15 mín. Afhýðið tómatana og fjarlægið kjarnann. Bræðið smjörið á pönnu, hitið laukinn í smjörinu, þá hvítlaukinn, síðan skinkuna, þá tómatkjötið og í lokin steinseljuna. Bragðbætið með salti og pipar eftir smekk. Setjið blönduna í velsmurt eldfast fat, hellið vatninu frá makkarónunum og hellið þeim yfir. Blandið saman eggjum, mjólk og raspi, hellið þessu yfir makkarónurnar, stráið rifna ostinum yfir og bakið í 30 mín við 220°C. Berið fram heitt með grófu salati.