Lúðu pate

800 gr roðlaus flök
4 - 500 gr smátt saxaðar rækjur
400 gr majones
2 dl hrísgrjón
1 dl smátt saxað dill eða steinselja (eða 2 tsk af hvoru þurrkuðu)
sama magn af graslauk
1 msk Condi Mix Provencale
2 tsk estragon
sítrónuedik
lárviðarlauf

Fiskurinn soðinn í vatni með salti, piparkornum, lauk, sítrónuediki og lárviðarlaufi.
Grjónin soðin og kæld.
Fiskurinn hrærður í sundur.
Majones sett í skál og fiskurinn, grjónin, rækjurnar og kryddið sett út í.
Farsið sett í form sem hefur verið skolað upp úr köldu vatni.
Álpappír settur yfir og formið sett á kaldan stað að minnsta kosti yfir nótt.
Losið farsið úr forminu með hníf og hvolfið á fat.
Skreytið að vild.
Borið fram með ristuðu brauði og góðri majonessósu t.d. Graflaxsósu eða piklessósu