Kryddsíldarkartöflusalat Sigga Hall.
Handa 6-10 manns
6-10 kryddsíldarflök
6-8 soðnar kartöflur, flysjaðar og skornar í sneiðar
2-3 rauðlaukar, saxaðir
4 msk majones
3 msk sýrður rjómi
4 msk grófkornað sinnep
1 msk síróp
safi úr 1/2 sítrónu
Aðferð:
Skerið síldarflökin í eins cm bita. Hrærið saman majones, sýrðum rjóma og
sinnepi. Bætið sírópi og sítrónusafa út í. Setjið kartöflur, síld og rauðlauk út
í. Hrærið öllu varlega saman með skeið.