Krem náttúrunnar

Það er ekki ofsögum sagt að mörgum konum finnst gaman að dekra við sig með fínum snyrtivörum, kremum og næringu. Flestar konur eiga því troðfulla baðskápa af alls kyns kremum, augnskuggum og fleiru. Það þarf hins vegar ekki alltaf að greiða morð fjár fyrir krem af fínasta tagi því oftar en ekki er hráefnið til í  ísskápnum.

Glansandi hármaski

Hiti, sól og sviti fara illa með hár en þessi gjöfuli maski gerir hárið mjúkt og glansandi. Eliut Rivera á heiðurinn af þessum maska en hann er frægur stílisti í Hollywood. Uppskriftin er svohljóðandi:

1 agúrka (lítil fyrir stutt hár en stór fyrir sítt hár)
1-2 msk ólífuolía

Setjið agúrku og olíu í blandara. Setjið blönduna jafnt í hárið og einblínið á endana. Leyfið blöndunni að vera í hárinu í 15 mínútur en eftir það er hárið skolað vel og þvegið með sjampói og næringu.

Handakrem

Hendurnar verða mjúkar og sléttar eftir notkun á þessu skemmtilega handakremi.

1 msk sykur
1 msk ólífuolía
1/2 lítil límóna
3-5 myntulauf

Skerið niður myntulaufin og kreistið límónu ofan í skál. Blandið saman myntu, límónu, ólífuolíu og sykri. Nuddið kreminu í lófann og dreifið vel. Kremið er líka gott fyrir naglabönd.