Krækiberjavín (25 lítrar)
10-14
lítrar hrásaft
5 kg. sykur
1 glas vínsýra
4-5 bananar
4 epli
1 sett Bordó-rauðvínsgerlar og gernæring.
Ekki má
nota saft með rotvarnarefnum (Betamon).
Best er að pressa berin og henda hratinu, ef kjarnarnir eru með verður vínið
beiskt.
Bræðið sykurinn í heitu vatni, sjóðið bananana (ekki hýðið)og epli, stappið í
mauk.
Saft, sykur, bananar og epli srtt í kút og heitu vatni bætt í að 25 lítra
markinu.
Ger, gernæring og vínsýra sett út í, þegar hitastig er 25 -27°C.
Vínið látið gerjast á heitum dimmum stað (26°C), hrist 2-3 á dag.Sykri bætt í
eftir smekk.(Ath. gildandi lög um styrkleika heimagerðs víns).
Þegar vínið er fullgerjað er bætt í kamtendufti og gerstoppi, hrist mjög
vel.Látið standa nokkra daga, dregið yfir á annað ílát, bætt í felli og hrist
þar til ekkert loft kemur lengur úr vatnslás.
Látið standa á köldum stað í viku eða lengur, ekki sett á flöskur fyrr en það er
alveg tært, glitrar í glasi. Fallegt og þjóðlegt rauðvín.