Konfekt með Galliano

 

150 g Síríus suðusúkkulaði(konsum)1/4 bolli rjómi

25 g smjör

2 msk. Galliano, líkjör

1 tsk. Skyndikaffi

 

Leysið skyndikaffið upp í rjómanum og setjið hann í skál ásamt súkkulaðinu og smjörinu og bræðið saman í vatnsbaði. Hrærið stanslaust í blöndunni. Setjið Galliano-líkjörinn út og hrærið vel saman. Kælið vel. Setjið gómsætt kremið í rjómasprautupoka og sprautið því í konfektmót (u.þ.b. 25 stk.). Geymið í kæli, en frystið ekki.