Kirsuberjasulta með kanil


Kirsuberjasultu má nota í bökur og ýmsa eftirrétti eða með góðum osti. Í þessa uppskrift þarf til eitt
kg af kirsuberjum, eina kanilstöng, börk og safa úr tveimur sítrónum, 500 g af sykri og sultuhleypi.


Aðferð

Skerið kirsuberin gróflega niður og setjið í stóran pott ásamt kanilstönginni, sítrónuberkinum og safanum og 150 ml af vatni. Látið suðuna koma rólega upp og lækkið síðan hitann og látið malla í 20 mínútur. Hrærið öðru hverju og látið malla þar til berin eru orðin mjúk. Bætið því næst við sykrinum og hrærið þar til hann hefur leyst upp, látið síðan sjóða vel í um 5 mínútur þar til sultan hefur fengið létta áferð. Ef hún á að vera í stífari kantinum skal sjóða hana aðeins lengur.