Kartöflustappa
750-1000 gr kartöflur
1-2 dl mjólk
2 msk smjör
salt og pipar
Flysjið kartöflurnar og sjóðið í vatni eða gufuofni. Eða á hefðbundinn hátt en alltaf án salts. Þegar kartöflurnar eru soðnar eru þær marðar í gegnum sigti eða pressaðar í kartöflupressu. Hitið mjólkina með smjörinu og hrærið saman við kartöflurnar og kryddið í lokin.