Kartöflupestó
400 g kartöflur (soðnar og stappaðar)
100 g möndluhakk
100 g graskersfræ
1 poki klettasalat
1 hnefi basilíkum
2 dl græn ólífuolía
hvítlaukur, salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
Allt nema kartöflurnar sett saman í matvinnsluvél og maukað, kartöflurnar
hrærðar saman við að lokum.
Sem hluti af öðrum forrétt
Skerið bollurnar í sundur,
setjið smá af kartöflusalatinu ofan á
og pestó svo þar ofan á. Fallegt að skreyta forréttinn svo með graslauk og
papriku svo eitthvað sé nefnt.