Kartöflugratín

700 g kartöflur, skornar í sneiðar (soðnar í um 15 mín)
slatti af blaðlauk, graslauk eða púrrulauk

Kartöflusneiðum og lauk raðað í eldfast mót

Sósa:
1 dós sýrður rjómi
100 g smjörlíki
200 g rifinn ostur
1/4 lítri rjómi

Allt sett saman í pott og hitað, hrært vel í á meðan. Kryddað með salti og nýmöluðum pipar. Hellt yfir kartöflublönduna og rifinn ostur settur yfir. Bakað í ofni við 210 gráður í 25 mínútur.

Fróðleikur:
Það að forsjóða kartöflurnar í 15 mínútur eftir að búið er að skera þær niður styttir tímann sem rétturinn er hafður inni í ofninum. Ef þær eru ekki soðnar á undan þarf rétturinn að vera klukkutíma í ofninum en annars eru 25 mín. nóg. Svo má leika sér heil ósköp með að bræða alls konar osta í rjóma og hella yfir.