Kartöflubátar

4 stórar bökunarkartöflur
4 msk ólífuolía
4 msk smjör bráðið
2 tsk sjávarsalt
½ tsk nýmalaður pipar
½ tsk paprikuduft
½ tsk hvítlauksduft

Hitið bakaraofn í 225°C. Skerið kartöflurnar eftir endilöngu í báta, það eiga að fást átta bátar úr hverri kartöflu. Blandið saman smjöri og ólífuolíu. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og penslið pappírinn með smjörblöndunni, leggið kartöflubátana á ofnskúffuna og penslið þá með blöndunni, bakið kartöflurnar þar til þær eru fallega brúnar ca 10 mín. Blandið saman kryddinu og stráið því yfir kartöflurnar og bakið áfram í 15 mín. Berið fram strax.