karamelluð epli
1 stk. grænt epli
50 g sykur
10 g smjör
3 msk. rjómi
Blandið saman sykri, smjöri og rjóma á pönnu svo úr verði karamellublanda,
skerið epli í litla teninga og setjið út í sykurinn. Eldið í tvær mínútur.
Berið fram á salatblöðum, með ferskum jarðarberjum, bláberjum og ristuðum
valhnetum.