Kalkúnafylling

1-2 gulir laukar, niðurskornir
3-4 hvítlauksrif, niðurskorinn
50 gr smjör
2 græn, þroskuð epli, flysjuð, kjarnhreinsuð og skorin í bita
700 gr svínahakk
8 brauðsneiðar, ristaðar í ofni og muldar niður
handfylli af pecanhnetum, gróf saxaðar
2-3 teskeiðar timjan
1 tsk salvía
handfylli af steinselju, söxuðu niður
salt og pipar
2 msk hlynsíróp

Steikið laukinn upp úr smjörinu á pönnu í u.m.þ.b. 20 mínútur við lágan hita þar til hann karmeltast. Laukurinn er færður af pönnunni og settur í stóra skál. Næst eru eplin steikt á pönnunni þar til þau taka aðeins lit, þvínæst fara þau í skálina. Svínahakkið er svo steikt á pönnunni upp úr smjöri/olíu og þegar tilbúið er það fært yfir í skálina með lauknum og eplunum. Þá er hökkuðum brauðsneiðum bætt útí. Svo pecanhnetunum, kryddinu og hlynsírópinu. Þessu er svo blandað saman og leyft að kólna.

Kalkúnn