Káljafningur (Passar vel með soðnum eða steiktum kjötbollum, snitsel eða reyktu svínakjöti)
800 g hvítkál
Hvít sósa
2 msk smjör
4 msk hveiti
4 dl mjólk
3/4 tsk salt
nýmalaður pipar
2 msk hökkuð steinselja
Skerið hvítkálið í lengjur og sjóðið í léttsöltu vatni. Takið vatnið frá þegar kálið er orðið mjúkt. Hvítur jafningur er gerður með því að baka upp sósuna með smjöri og hveiti og þynna út með mjólk. Einnig má nota soð af hvítkálinu til að þynna eða eftir smekk. Kryddið sósuna með salti og pipar og múskati. Setjið kálið í að lokum og látið hitna vel í gegn. Loks er steinseljan sett út í.