KK-turninn (ca. 15 stk.)

1 dökkt brauð (t.d. sólkjarna eða fjölkorna frá Delba)
2 mozzarellaostar frá Galbani
1 pakki Mini mozzarella frá Galbani
1 krús Saclà Oven roasted tómatar
grænar steinlausar ólífur

KK Turinn


fersk basilíka


Ansjósusmjör:
100 g mýkt smjör
30 g mascarponeostur (Galbani)
3 söltuð ansjósuflök í olíu (þerrið olíu frá)
ögn af nýmöluðum pipar


Mýkið smjör í nokkrar sekúndur í örbylgjuofni
(eða látið standa úr kæli um stund) og hærið
svo með skeið þar til það verður kremkennt.
Bætið mascarponeosti og mörðum og söxuðum
ansjósunum saman við og þeytið allt
vel saman þar til úr verður jöfn blanda.
Smakkið til með pipar. Skerið brauð út í litlar
hringlaga sneiðar með þar tilgerðu hringformi
(sbr. piparkökuform) og ristið sneiðar á
bökunarplötu í ofni. Kælið og smyrjið með
ansjósusmjörinu. Skerið mozzarellaostana í
þunnar sneiðar (í tveimur stærðum, þá venjulega
og mini-úgáfuna af ostinum). Þerrið
Oven roasted“-tómatana, skerið í þykkar
sneiðar og látið mestu olíu drjúpa af þeim á
eldhúspappír. Fyllið ólífur með ansjósusmjöri
og raðið upp brauðturninum í eftirfarandi
röð: brauð-mozzarellasneið (venjuleg),
basilíkulauf – „Oven roasted“-tómatsneið
– mozzarellasneið (lítil) – og fyllt ólífa á toppinn.