Hvítlauksristaðir sveppir og konfekttómatar

 

1 box sveppir

1 box konfekttómatar

2 hvítlauksgeirar

1 dl ólífuolía

½ búnt steinselja

Steikið sveppina í helmingnum af ólífuolíunni þar til þeir eru gullinbrúnir á lit. Setjið í eldfast mót ásamt tómötum og rest af ólífuolíu, fínt söxuðum hvítlauk og fínt saxaðri steinselju. Bakið við 180°C í 6 til 8 mínútur. Salt og pipar eftir smekk.