Hvítlauksræktun í garðinum heima
Það er sáraeinfalt að rækta sinn eigin hvítlauk. Fyrst
er bara að kaupa nokkra hvítlauka í kjörbúðinni (betra er að þeir séu lífrænt
ræktaðir) hluta þá í sundur og pota geirunum niður í mold að hausti. Hver geiri
verður svo að heilum lauk að vori ef vel tekst til við ræktunina.
Þá er bara að færa sig út úr eldhúsinu og út í garð og búa til litlar holur í
moldina með um tuttugu sentimetra millibila og setja einn hvílauksgeira niður í
hverja holu. Mjói endinn á að snúa upp og svo er svolítilli mold sópað yfir.
Hvítlaukur vex mest í frjórri mold svo það getur borgað sig að blanda
ofurlítilli moltu eða húsdýraáburði saman við moldina. Svo er bara að þreyja
þorrann og bíða vorsins.
Hvítlaukur er ein fyrsta plantan sem skýtur kollinum upp úr moldinni á vorin.
Hvítlauksblöðin sjálf eru afar bragðgóð og það er gott að klippa eitt eða tvö
blöð af hverri plöntu, saxa niður og setja í salat. Blöðin færa lauknum sem vex
ofan í moldinni næringu svo það er vænlegast að varast græðgi og taka aldrei
fleiri en tvö í einu til að skerða ekki næringarupptöku lauksins.
Í júní vaxa upp blóm af hvítlauknum en það er besta að klippa þau strax af
því annars eyðir laukurinn öllum sínum kröftum í að blómstra og laukurinn
sjálfur verður matarlítill og væskilslegur. Þegar tveir þriðju hlutar grænu
laufanna fara að visna , en það gerist oftast í júní mánuði, er kominn tími á
uppskeru. Þar sem hvítlaukurinn liggur ofarlega í moldinni er alveg nóg að nota
venjulegan matargaffal við uppskeruna og bara róta eftir lauknum í moldinni.
Eftir uppskeruna tekur mikilvægasti hluti ræktunarinnar við en það er þurrkun
lauksins. þá er gott að binda laukknippin saman og hengja þau upp á hlýjum og
þurrum stað í þrjár vikur, Þetta eykur geymslutíma lauksins til muna og gerir
það a verkum að hægt er að elda dýrindiskrásir úr himneskum heimaræktuðum
hvítlauk fram eftir vetri.