Hnetu- og ansísgrafinn lax með kanil-púrtvínssósu

1 vænt laxaflak
2 dl maldon salt
2 dl hunang, fljótandi
1/4 gl grófmalaður pipar
1/2 dl timjan
20 stykki stjörnuanís, malaður í duft í matvinnsluvél og sigtaður
3 dl möndluspænir, ristaður á pönnu eða í ofni

Beinhreinsið og snyrtið laxaflakið, Stráið maldon salti jafnt yfir flakið og látið standa í stofuhita í 1 1/2 klst. Smyrjið hunangi þétt yfir flakið og stráið svörtum pipar yfir ásamt  timjani og sigtuðum  stjörnuanís. Að síðustu er laxaflakið hulið með ristuðum möndlum. Látið standa í einn og hálfan sólahring áður en laxinn er borinn fram

Kanil-púrtvínssósa

1 dl bláber
1/2 dl bláberjasulta

1 dl rjómi, þeyttur
2 dl sýrður rjómi
1/2 dl hlynsýróp
1/2 dl dökkt púrtvín
1 msk púðusykur
1 msk kanill
salt og pipar eftir smekk

Maukið bláber í matvinnsluvél ásamt bláberjasultu. Þeytið rjóma og blandið öllu hráefninu saman í skál með sleif. Berið fram með gröfnum laxi