Heimagert majónes
Uppistaðan í majónesi eru eggjarauður og olía. Tvær eggjarauður eru settar í
skál og salti, pipar og dálitlu sinnepi og jafnvel hvítlauk bætt út í.
Bragðlítilli olíu, á borð við jarðhnetu- eða sólblómaolíu, er bætt saman við í
dropatali. Hér kemur handþeytari við sögu, því blönduna þarf að þeyta stöðugt á
meðan dropa af olíunni er bætt út í. Þegar blandan þykknar er teskeið af
hvítvínsediki bætt út í til að þynna hana.
Það má hella olíunni aðeins hraðar út í og þeyta á meðan. Smakkið til með salti
og pipar, og bætið sjóðandi vatni út i þil að gera majónesið léttara.
Hér er önnur uppskrift:
Heimagert
majónes:
1 stór
eggjarauða , við stofuhita
½ dijonsinnep
½ tsk salt
¾ bolli ólífuolía eða grænmetisolía
1 tsk hvítvíns- eða eplaedik
1 ½ tsk nýkreistur sítrónusafi
¼ tsk hvítur pipar
Pískið
saman eggjarauðu, sinnep og salt þangað til það hefur blandast vel. Takið ¼
bolla af olíunni frá og bætið henni út í eggjablönduna dropa fyrir dropa. Hrærið
stöðugt í á meðan þar til blandan fer að þykkna. Hrærið ediki og sítrónusafa
saman við, og bætið þá restinni af olíunni, ½ bolla út í afar hægt og rólega.
Hrærið stöðugt í á meðan. Ef svo virðist sem blandan muni skilja sig, hættið þá
að bæta olíu út í og hrærið af fali þar til blandan er slétt á ný. Hrærið að
lokum piparnum saman við og smakkið majónesið til með salti. Strengið plastfilmu
yfir ílátið og kælið þar til að notkun kemur. Majónesið ætti þá að endast í tvo
daga í ísskáp.