Heimagerð páskaegg úr heimagerðu súkkulaði

Nægir fyrir eitt meðalstórt egg eða tvö minni

SÚKKULAÐIÐ

1 dl lífrænt kakóduft

½ dl kaldpressuð kókosolía

½ dl kakósmjör

½ dl agavesýróp

Setjið kakóduft , fljótandi kókosolíu, fljótandi kakósmjör og agavesýróp í skál Hrærið þessu saman þar til blandan er alveg kekklaus. Síðan er gott að krydda með smá vanilludufti og eða örlitlum cayenne pipar. Til að kókosolían verði fljótandi er þjóðráð að láta heitt vatn renna á kókosolíukrukkuna eða setja krukkuna í skál með um 50 gráðu heitu vatni í vaskinum. Til að kakósmjörið (fæst í heildsölum sem selja bökunarvörur) verði fljótandi er gott að setja það í skál og inn í örbylgjuofn eða bræða það yfir vatnsbaði. Ef þið fáið ekki kakósmjör getið þið notað 85 prósent súkkulaði (til dæmis frá Gepa sem fæst í Maður lifandi), bræða yfir vatnsbaði og nota með kókosolíunni. Ef þið nennið ekki að búa til eigið súkkulaði þá veljið þið bara eitthvert flott súkkulaði sem þið bræðið yfir vatnsbaði og hellið í formin.

 

PÁSKAEGG

Takið páskaeggjaform og látið nokkrar skeiðar af súkkulaðinu í formið. Hallið forminu fram og til baka þannig að súkkulaðið renni um formið og þeki það vel. Setjið bökunarpappír á plötu og snúið formunum á hvolf á plötuna og látið súkkulaðið storkna. Þið farið alveg eins að með fótinn. Þetta tekur um 5 mín, en þið getið flýtt fyrir með því að setja formin inn í frysti eða kæli. Endurtakið að minnsta kosti einu sinni. Fer allt eftir því hve vel ykkur tekst til að þekja formin og hve þykk súkkulaðiskelin er orðin. Þegar skeljarnar eru tilbúnar þá er um að gera að setja skemmtilegan málshátt og fleira spennandi inn í eggið. Til dæmis heimatilbúið sælgæti eða annað fallegt sem kemur á óvart. Egginu er lokað með því að nota fljótandi súkkulaði sem lím. Því er smurt á kantinn á annarri skelinni og síðan er eggið „límt“ saman. Þar næst setjið þið smá „súkkulaðilím“ á fótinn og límið eggið á hann. Til að laga kantana setjið þið súkkulaði í sprautupoka og sprautið því allan hringinn. Svo má skreyta með sælgæti eða pallíettum og öllu þar á milli. Að lokum er unginn festur á og eggið er tilbúið.