Haframjölsklattar með áleggi
af ms vefnum
Klattana má smyrja og bera fram með alls kyns áleggi, salati, laxi, eggjum,
tómötum, kjötáleggi o.fl. Látið hugmyndaflugið ráða.
4 dl mjólk
1 dl súrmjólk
2 g haframjöl
165 g hveiti
25 g sykur
0,75 tsk salt
2 egg
50 g smjör
1 tsk vanilla
Blandið saman haframjöli, mjólk og súrmjólk. Bætið hveiti, lyftidufti, salti,
sykri og vanillu út í. Sláið eggin saman og hrærið þau vel saman við. Bræðið
smjörið og hrærið út í. Látið deigið bíða um stund. Bakið litla klatta við vægan
hita á eggjapönnu eða pönnukökupönnu (11/2 msk fer í hvern klatta).
