Gulróta- og sítrónumarmelaði
700 g gulrætur, rifnar
4 sítrónur (safi og rifinn börkur)
400 g sykur
3 dl vatn
2 tsk blátt melatín - blandað í 1 msk sykur
Gulrætur, sítrónubörkur, safi úr sítrónum, sykur og vatn sett í pott og hitað
við vægan hita í 1 klst. Þá er melatín/sykurblandan sett í pottinn og hrært í á
meðan soðið er áfram í eina mínútu. Þá er allt tilbúið til að setja í krukkur.
(Gæti verið gott að nota gulrótar/appelsínu/ sítrónusafa frá Chiquita í
staðinn fyrir vatnið, hef ekki prófað það.)