Grænmetishrísgrjón

3 dl löng hrísgrjón
8 dl vatn
2 msk olía
salt og pipar
200 gr gulrætur
½ rauð paprika
½ græn paprika
1 lítill púrrulaukur
olía til steikingar

Hrísgrjónin soðin í vatninu eftir leiðbeiningum á pakkanum, þegar suðan er komin upp er olíunni bætt út í suðuvatnið. Grænmetið er skorið smátt og létt steikt á pönnu. Ef mikið vatn er enn á hrísgrjónunum, þegar þau eru soðin er því hellt frá og grænmetinu bætt saman við grjónin, þau krydduð og látin standa smá stund.
ATH. Í þennan rétt má líka nota maísbaunir og eða sveppi.